Tenglar

Velkomin á vef rannsóknastofu um stærðfræðimenntun
Rannsóknastofan sinnir rannsóknum á fræðasviðinu stærðfræðimenntun, er samstarfsvettvangur fræðimanna á sviðinu, stuðlar að tengslum við önnur fræðasvið og á samstarf við innlenda og erlenda aðila um rannsóknir og önnur samskipti, m.a. þjálfun stúdenta í rannsóknartengdu námi.
Stofan leitast við að miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna á sviðinu, m.a. með útgáfu skýrslna, handbóka og fræðigreina og -rita ásamt með ráðstefnu- og fyrirlestrahaldi. Hún veitir ráðgjöf á sviðinu eftir því sem aðstæður leyfa og eftir verður leitað.
Stjórn stofunnar skipa Freyja Hreinsdóttir, Guðný Helga Gunnarsdóttir og Kristín Bjarnadóttir formaður.